152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

um fundarstjórn.

[16:24]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Þessi málefni fara að verða eins og viðlag. Þetta kemur alltaf öðru hverju á milli laga. Það er eins og menningar- og viðskiptaráðherra hafi komið að nóttu til og rænt þessum ráðuneytisstjóra eða rænt honum í starfið. Það er ekki svo.

Ég vil minna á að þetta mál kom inn í forsætisnefnd. Þingflokkur Samfylkingar, sem hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson situr fyrir, mótmælti þessu ekki — það voru engar ályktanir eða bókanir í forsætisnefnd um þetta mál þannig að ég get ekki séð að þetta mál sé eitthvað sem sé að tefja okkur og eigi að vera á borði okkar hér í þingsal. Þetta er bara embættismaður sem flytur sig í starfi, sjálfviljugur nota bene. (JPJ: Hann flytur sig ekki.) — Hann flytur sig víst. Hann hlýtur að koma eitthvað að þessari ákvörðun. (Gripið fram í.)

(Forseti (JSkúl): Forseti biður fundarmenn að vera ekki í samtölum við fólk í ræðustól.)