um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég vil af þessu tilefni nefna að hér kom hv. þm. Halla Signý Kristjánsdóttir upp á undan mér og lýsti því að mál hefðu verið rædd með tilteknum hætti í forsætisnefnd. Það getur auðvitað aldrei orðið tilefni til þess að þingmenn geti ekki komið upp hér og rætt málin að mál hafi verið rædd í forsætisnefnd, bara þannig að því sé haldið til haga. Þingmenn hafa fullt málfrelsi varðandi það hvaða mál þeir setja á dagskrá og taka upp hér undir liðnum fundarstjórn forseta. Það er nú þannig að mjög iðulega kemur upp sú staða að við þingmenn sem ekki erum í tiltekinni fagnefnd erum í mjög miklum vandræðum með að nálgast upplýsingar um mál sem við viljum taka þátt í að ræða. (Forseti hringir.) Ég vil bara ítreka það aftur að umræða í forsætisnefnd getur aldrei lokað á það að þingmenn flokks sem ekki gerði athugasemd þar taki þátt í umræðu um mál.