bygging hátæknisorpbrennslustöðvar.
Frú forseti. Ég mæli fyrir þingsályktunartillögu um byggingu hátæknisorpbrennslustöðvar. Flutningsmenn eru sá sem hér stendur og hv. þm. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins. Við leggjum til að Alþingi álykti að fela umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að kanna hagkvæmni og möguleika þess að reisa hátæknisorpbrennslustöð sem meðhöndli mestallt eða allt sorp sem ekki er unnt að endurvinna hér á landi. Ráðherra kynni Alþingi niðurstöður könnunarinnar í vor. Við nefnum hér 1. apríl 2022 en þegar við lögðum málið fram síðastliðinn desember þá þótti okkur það tilhlýðilegur frestur en við gerum ekki athugasemdir við að hv. umhverfis- og samgöngunefnd hniki þessari dagsetningu til en þó þannig að hún sé innan þess tíma sem þing er að störfum þetta vorið.
Tillaga þessi hefur verið flutt þrisvar sinnum áður af þingmanni Miðflokksins, Karli Gauta Hjaltasyni, fyrst á 149. löggjafarþingi, svo á 150. og 151. þingi og nú leggjum við þetta til í fjórða skipti. Það sem hefur gerst í millitíðinni fer ég í gegnum hér á eftir en auðvitað hefur eitt og annað áunnist hvað þróun þessara mála varðar síðan tillagan var fyrst lögð fram í júní 2019.
Hér á landi hefur magn úrgangs að mestu farið vaxandi síðustu ár. Árið 2016 nam magn úrgangs sem féll til yfir milljón tonnum og náði magnið sögulegu hámarki árið 2017 þegar það var 1,4 milljónir tonna. Árið 2018 féll aftur á móti til 100.000 tonnum minna af úrgangi en árið á undan. Í ársskýrslu Umhverfisstofnunar árið 2019 kemur fram að árið 2018 hafi fallið til um 712 kg á hvern íbúa á Íslandi af heimilisúrgangi sem sé mjög hátt miðað við meðaltal innan Evrópusambandsins. Þó þarf að hafa í huga að heimilisúrgangur er ekki aðeins upprunninn á heimilum heldur fellur sams konar úrgangur til hjá fyrirtækjum, t.d. hótelum og mötuneytum.
Hluti úrgangsins fer til endurvinnslu en það sem eftir stendur er að mestu urðað á urðunarstöðum víðs vegar um landið, m.a. í Álfsnesi, í Fíflholti á Mýrum og við Blönduós, ásamt öðrum úrgangi. Sorpa Álfsnesi hefur starfsleyfi til að taka á móti og urða allt að 120 þúsund tonn af úrgangi á ári. Árið 2018 voru 141.358 tonn urðuð í Álfsnesi og 132.609 tonn árið 2017. Sorpurðun Vesturlands hefur heimild fyrir urðun úrgangsefna í Fíflholti á Mýrum, allt að 15.000 tonnum á ári. Árið 2018 voru urðuð 15.457 tonn af úrgangi þar. Norðurá hefur heimild til að urða allt að 21.000 tonn við Stekkjarvík í landi Sölvabakka við Blönduósbæ. Árið 2018 voru urðuð þar 21.745 tonn en árið 2017 20.523 tonn þannig að alls staðar er verið í efstu mörkum, ef ekki yfir þeim, þar sem urðun á sér stað.
Urðun úrgangs getur valdið grunnvatnsmengun um langa framtíð sé ekki rétt staðið að málum. Síðustu ár hefur heimilisúrgangur ekki verið fluttur frá Íslandi til brennslu í öðrum ríkjum en spilliefni, t.d. olíuúrgangur, hafa verið send til annarra ríkja til endurnýtingar, t.d. til notkunar sem eldsneyti eða á annan hátt til orkuframleiðslu. Nýlega hafa því komið upp hugmyndir um að sigla með sorp til annarra landa, m.a. Svíþjóðar og fleiri landa, til brennslu í svokölluðum hátæknisorpbrennslustöðvum.
Sorpbrennslustöðvar eru útbúnar sérstökum tækni- og hreinsibúnaði til að brenna úrgang og hægt er að nýta varmann sem myndast við brennsluna. Árið 2016 voru starfræktar 2.200 svokallaðar WTE (e. waste-to-energy) sorpbrennslustöðvar í heiminum. Allmargar þessara sorpbrennslustöðva eru í Evrópu. Á Íslandi er ein sorpeyðingarstöð sem hefur leyfi til sorpbrennslu, en það er móttöku-, flokkunar- og brennslustöðin Kalka, sem er í eigu sveitarfélaganna á Suðurnesjum. Stöðin getur brennt allt að 12.300 tonnum á ári og er útbúin hreinsunarbúnaði sem heldur mengun í lágmarki. Í stöðinni er nú mestallt sjúkrahússorp á landinu brennt auk hluta af þeim spilliefnaúrgangi sem til fellur.
Evrópusambandið stefnir að því að einungis 10% af öllum úrgangi sem til fellur árið 2035 verði urðuð og tekin hefur verið upp sú stefna í mörgum löndum Evrópu að brenna fremur sorpi en að urða það.
Samkvæmt landsáætlun um meðhöndlun úrgangs fyrir tímabilið 2013–2024 er stefnt að því að bæta nýtingu úrgangs og draga verulega úr urðun. Þar kemur m.a. fram að urðun er algengasta förgunarleið úrgangs hér á landi en urðunarstöðum hefur þó fækkað töluvert á síðustu árum, m.a. vegna hertra krafna um mengunarvarnir.
Ljóst er að með vaxandi kröfum í umhverfismálum verða þjóðir heims hver fyrir sig að sjá um að eyða því sorpi sem til fellur hjá þeim með umhverfisvænum og hagkvæmum hætti. Því er tímabært að Íslendingar komi á fót eigin hátæknisorpbrennslustöð sem byggð yrði samkvæmt ýtrustu kröfum um mengunarvarnir.
Hátæknisorpbrennslustöðvum fylgja fjölmargir kostir. Með því að brenna sorpi í hátæknibrennslustöð er sorpinu breytt í nýtanlega orku, raforku og hitaorku. Þá valda nýjustu hátæknisorpbrennslustöðvarnar tiltölulega lítilli loftmengun, langt innan þeirra marka sem leyfileg eru. Minna land fer til spillis og grunnvatn mengast síður.
Sem dæmi má nefna nýja hátæknisorpbrennslustöð á Amager í Kaupmannahöfn, en stöðin var tekin í notkun um mitt ár 2017. Það ár var tæplega 242.000 tonnum af sorpi brennt í stöðinni. Gert er ráð fyrir að stöðin meðhöndli um 400.000 tonn af úrgangi árlega sem stafi frá um 600.000 íbúum og um 46.000 fyrirtækjum. Úr úrganginum er unnið rafmagn og hiti til um 150.000 heimila. Árið 2018 var 443.000 tonnum af sorpi brennt í stöðinni.
Á 150. löggjafarþingi sendi umhverfis- og samgöngunefnd málið til umsagnar og í umsögn sem barst nefndinni kom fram að gert væri ráð fyrir að árið 2035 þurfi að farga um 140 milljónum tonna á ári af úrgangi innan Evrópusambandsins þrátt fyrir að öllum áætlunum þess um hringrásarhagkerfi væri náð, endurvinnsla hefði náð nýjum hæðum og urðun sorps væri undir 10%. Séu sömu forsendur yfirfærðar á Ísland má gera ráð fyrir að hér á landi verði magnið um 100.000 tonn á ári og þar af um 50–70 þúsund tonn af úrgangi á ári frá höfuðborgarsvæðinu. Byggingarkostnaður fyrir hátæknisorpbrennslustöð kynni að vera á bilinu 18–22 milljarðar kr. samkvæmt því mati sem hér var lagt til grundvallar, ég kem betur inn á það síðar, og gæti slík stöð ekki keppt við orkuverð frá vatnsafls- eða jarðvarmavirkjunum. Taka þarf tillit til þess í heildarskoðuninni.
Mikilvægt er að Íslendingar stígi skref í þá átt að endurvinna sem mest af því sorpi sem hér fellur til og eyða því sem eftir stendur með þeim hætti sem frekast er fallinn til að vernda náttúru og umhverfi. Þannig verði stuðlað að verndun náttúrunnar fyrir núlifandi og komandi kynslóðir og sýnt í verki að Íslendingar taki ábyrgð á að farga eigin sorpi með eins lítilli mengun fyrir umhverfið og nokkur kostur er.
Ég vil koma hér inn á þær fréttir sem hafa verið að berast undanfarið til okkar landsmanna vegna þessara mála. Í byrjun árs 2021, 11. janúar nánar tiltekið, var á vef umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins, eða forvera þess, sagt frá skýrslu sem þá hafði verið unnin fyrir Umhverfisstofnun um greiningu á þörf sorpbrennslustöðva á Íslandi sem hafði verið skilað í lok september 2020. Þar sjáum við allt aðra mynd en dregin hafði verið fram af því hvað fýsileika hátæknisorpbrennslustöðva sem þessara varðar. Þarna eru dregnar upp mismunandi sviðsmyndir; ein stöð fyrir landið allt, fimm minni á mismunandi svæðum og síðan var þriðji valkosturinn sem er nú dottinn úr kollinum á mér. Síðan fer auðvitað mikið af þessum vangaveltum í bestun er varðar flutning sorps á milli svæða og þar fram eftir götunum til að lágmarka kostnað og umhverfisáhrif.
Þetta er í byrjun árs 2021 og síðan bárust fréttir í lok árs 2021, sem sagt undir áramót í desember síðastliðnum, þar sem var verið að segja frá starfshópi á vegum Sorpu og Kölku, Sorpstöðvar Suðurlands, Sorpurðunar Vesturlands og umhverfisráðuneytisins þar sem hópurinn hafði komist að þeirri niðurstöðu að besti kosturinn væri að reisa sorpbrennslustöð í Álfsnesi. Það er auðvitað mjög áhugaverð þróun mála. En að fenginni reynslu er hætt við að það væri kostur að hvetja menn til dáða hvað þetta varðar því að hlutir gerast því miður allt of hægt á löngum köflum á vettvangi ríkis og sveitarfélaga. En varðandi það sem menn flýttu sér kannski helst með, svokallaða GAJA-stöð, eru menn enn að bíta úr nálinni með að undirbúningur hafi ekki verið fullnægjandi. Það skiptir mjög miklu máli að þétt sé stutt við að þetta mál vinnist áfram og landsmenn komist í mark hvað það varðar að þessi þróun eigi sér stað.
Í frétt um niðurstöðu þessa starfshóps á vef Ríkisútvarpsins sem birtist 15. desember síðastliðinn segir, með leyfi forseta, þetta er sem sagt mat þessa hóps:
„Áætlaður kostnaður er 20 til 35 milljarðar en langt er í að stöðin rísi. Taka þarf ákvörðun, vinna skipulag, hanna, sækja um leyfi, fara í útboð og loks byggja. „Jafnvel þótt við myndum ákveða í dag að fara af stað þá eru örugglega átta ár í að hún verði komin í notkun.““
Átta ár eru auðvitað — það þarf að skoða samhengið þegar metið er hversu langur tími það er.
Þetta var haft eftir Helga Þór Ingasyni, verkefnastjóra og ritstjóra skýrslunnar sem starfshópurinn skilaði, svo því sé haldið til haga. En þarna er því lýst að stöðin yrði varla orðin starfhæf fyrr en að átta árum liðnum. Kostnaðarmatið er á svipuðu róli og það sem við höfðum lagt til grundvallar hvað neðri mörkin varðar. Við lögðum til 18–22 milljarða þarna en starfshópurinn er að horfa á 20–35 milljarða. Í öllu falli gefst þinginu tækifæri til að hraða þessu ferli og styðja við það með þeim ráðum sem tæk eru. Þetta er margþætt, bæði hvað varðar flutninga sem þurfa að eiga sér stað vegna þessa sorps, uppbyggingu samgönguinnviða, mögulegar strandsiglingar og annað slíkt sem þarf að koma til skoðunar. Ég held að það væri gustuk að þingið styddi við þetta og reyndi að hraða þeirri vinnu sem fram undan er í þessum efnum, og með þrautagöngu GAJA-verkefnisins í huga held ég að það væri kostur að þetta verkefni hefði góðan bakstuðning þingsins og hæstv. umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Í ljósi framangreinds leggjum við til að ráðherra verði falið að kanna möguleika þess að reisa hátæknisorpbrennslustöð. Slík stöð gæti meðhöndlað brennanlegt sorp frá landinu öllu. Eftir atvikum skuli athugað að bera kosti þess að reisa hátæknisorpbrennslustöð saman við aðra möguleika á úrvinnslu sorps. Í könnuninni yrði lagt mat á hvaða aðili, ríki, sveitarfélögin eða aðrir aðilar, stæði að byggingu og rekstri slíkrar stöðvar, hversu stór hún þyrfti að vera og hvar hagkvæmt væri að reisa hana, m.a. með hliðsjón af flutningi sorps milli landshluta. Mikilvægt er í upphafi að kanna samstarfsvilja allra sveitarfélaga til verkefnisins, en sveitarfélög ákveða fyrirkomulag söfnunar heimilis- og rekstrarúrgangs og meðhöndlun úrgangs á sínu svæði.
Jafnframt þarf að kanna hvaða verð væri unnt að bjóða fyrir förgun úrgangs og hvort og hversu hátt gjald sveitarfélögin væru tilbúin til að greiða. Þannig yrðu kannaðir kostir og gallar við byggingu og rekstur slíkrar stöðvar með tilliti til förgunarkosta sem nú eru nýttir og ráðgert er að nýta. Jafnframt yrði könnuð raforku- og varmaframleiðsla sem slík stöð gæti skilað og selt frá sér. Gert er ráð fyrir að ráðherra kynni Alþingi niðurstöður könnunarinnar fyrir 1. apríl 2022, segir hér. En eins og ég kom inn á í upphafi ræðu minnar höfum við tillögugerendur skilning á því að örlítill dráttur gæti orðið þar á en þó þannig að innan þess þings sem nú er að störfum kynnti ráðherra niðurstöður sínar.