152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

bygging hátæknisorpbrennslustöðvar.

197. mál
[16:42]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu máli og þessari tillögu. Ég held að við deilum ansi mörg áhuga á úrgangsmálum og stöðu úrgangsmála í landinu og ég er þeirrar skoðunar og hef verið að það hafi tekið okkur mjög langan tíma að taka alvarlega á þessum málum, sér í lagi í ljósi þess hvað urðun úrgangs veldur miklum loftslagsáhrifum. Og bara vegna þess að ég hef verið að lesa hér annars ágæta greinargerð með þessari tillögu þá langar mig að benda á eitt, í henni er vísað m.a. í landsáætlun um meðhöndlun úrgangs en í júní á síðasta ári var hún leyst af hólmi með fyrirbæri sem heitir Í átt að hringrásarhagkerfi, sem er stefna sem stígur einmitt skref inn í framtíðina og var unnin á vettvangi umhverfisráðuneytisins á þeim tíma. Í því samhengi þá deilum við algjörlega þeirri skoðun sem kemur fram í greinargerðinni, með leyfi forseta, þar sem segir:

„Mikilvægt er að Íslendingar stígi skref í þá átt að endurvinna sem mest af því sorpi sem hér fellur til og eyða því sem eftir stendur með þeim hætti sem frekast er fallinn til að vernda náttúru og umhverfi.“

Þar erum við algerlega sammála. Varðandi brennslukostinn sérstaklega, sem ég neita ekki að þurfi að vera möguleiki á: Deilir hv. þingmaður þeim áhyggjum með mér að hann geti líka orðið til þess að draga úr því sem þarf að eiga sér stað, að fólk endurvinni og endurnýti sem mest það getur í stað þess að reiða sig á brennslu?