152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

bygging hátæknisorpbrennslustöðvar.

197. mál
[16:44]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að þarna myndist eitthvert jafnvægi. Þetta er sambland af vilja til flokkunar og endurnýtingar og kostnaði við afsetningu sorps, hvort sem það er til brennslu eða endurnýtingar eða þar fram eftir götunum, þannig að ég held að þetta jafnvægi myndist á hefðbundinn máta, ef svo má segja. Til að svara spurningunni beint þá hef ég ekki áhyggjur af því að þetta dragi úr þeim hvata að styðja við flokkun eða draga úr óæskilegum leiðum til förgunar sorps. Og í öllu falli skila þau umframtonn, sem hægt væri að flokka með haganlegri hætti en brennslu, einhverri orku út á hinum endanum þegar þau hafa farið í gegnum það ferli. En ég held að þetta sé ekki stórt vandamál í heildarmyndinni.