bygging hátæknisorpbrennslustöðvar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Ég deili því þá með þingmanninum og öðrum að ég er ekki alveg eins sannfærður og hef aðeins áhyggjur af þessu og tel að vert sé að skoða þá vinnu sem var unnin í tíð fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra varðandi hringrásarhagkerfið og innleiðingu þess og átta sig aðeins á því hvaða hugmyndafræði er þar til grundvallar. Hún er einmitt sú að við komum aftur í hringrásina þeim efnum sem við sannarlega getum nýtt aftur og stuðlum ekki að því að nýta leiðir þar sem við komumst hjá þessu. Hafandi sagt það þá er algerlega nauðsynlegt að reka sorpbrennslu og við rákum okkur t.d. á það í ljósi þess ástands sem skapaðist í Skagafirði í kjölfar riðusmitanna síðastliðið sumar, sem var mjög erfitt og átakanlegt fyrir mjög marga aðila. Þar þurfti að ganga hratt og örugglega til verks en brennslukosturinn var ekki til staðar. Við höfðum ekki möguleikann á að brenna því þetta var svokallaður sóttmengaður úrgangur sem þurfti að brenna. En með tilvísun í hringrásarvinkilinn og hringrásarhugmyndina um að tryggja að við förum eins vel með það efni sem við höfum á fyrri stigum tekið út úr náttúrunni og komum því aftur inn í hringinn og í anda þess sem segir í greinargerðinni og ég las upp áðan, þá spyr ég: Sér hv. þingmaður einhverjar aðrar leiðir til að hvetja til þess í stað þess að ráðast hér í stærðarinnar byggingu á hátæknibrennslu? Það er sannarlega góð hugmynd, ég er ekki að gera lítið úr því, en getur haft, samanber mínar fyrri áhyggjur, þann hvata að hér förum við frekar að brenna en að skila aftur inn í hringrásina því sem þarf að komast þangað aftur.