152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

bygging hátæknisorpbrennslustöðvar.

197. mál
[16:47]
Horfa

Flm. (Bergþór Ólason) (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka andsvarið. Eflaust eru aðrar leiðir færar sem vert væri að skoða en sú tillaga sem hér liggur fyrir, og ég mælti fyrir rétt í þessu, gengur út á að hátæknisorpbrennsluleiðin verði skoðuð til enda. Mig grunar að ég hafi minni áhyggjur af þeim freistnivanda sem ég held að hv. þingmaður sé að reyna að lýsa hér hvað það varðar að flokka ekki það sem nokkur kostur er á að flokka til endurnýtingar. Reiknað er með því að kostnaður við sorphirðu og sorpvinnslu, kostnaður til endanotenda, endurspegli þann raunkostnað sem til fellur. Ég held því að þetta vandamál, ef við köllum það það, muni leysast á forsendum þess að eitthvert jafnvægi myndist milli kostnaðar við sorphirðu, hvort sem það er hjá heimilum eða fyrirtækjum, og þess að skila brennanlegu efni til sorpbrennslustöðvar eins og hér er rætt um. Ég bara treysti mér ekki hér og nú til að fara út í djúpa umræðu um aðra kosti. En ég held að í öllu falli sé nauðsynlegt að skoða þetta og gott að hv. þingmaður hafi rifjað upp stöðuna í tengslum við þau riðumál sem hafa komið upp á undanförnum árum sem hafa beinlínis verið hræðileg og ömurleg staða að kerfið ráði ekki við slíkt áfall. En bara svona til að súmmera þetta upp þá held ég að það vandamál sem hv. þingmaður lýsir varðandi freistnivandann muni leysast með þróun gjaldtöku fyrir þær leiðir sem farnar verða til sorpförgunar.