fýsileikakönnun á merkingum kolefnisspors matvæla.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um fýsileikakönnun á merkingum kolefnisspors matvæla. Meðflutningsmenn mínir á þessu máli eru Orri Páll Jóhannsson, Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, Jódís Skúladóttir, Bjarni Jónsson, Tómas A. Tómasson, Þórarinn Ingi Pétursson, Jakob Frímann Magnússon og Helga Vala Helgadóttir.
Tillagan felur í sér að fela hæstv. matvælaráðherra að fylgja eftir skýrslu starfshóps um merkingar matvæla með sértækri úttekt á merkingum fyrir kolefnisspor matvæla. Lagt er til að gerð verði fýsileikakönnun á samræmdum merkingum á kolefnisspori matvæla, innlendra sem erlendra.
Markmið tillögunnar er að auðvelda neytendum að meta kolefnisspor matvæla, sem er í takt við matvælastefnu stjórnvalda sem mælir með aðgerðum sem, með leyfi forseta, „tryggja aðgengi neytenda að réttum upplýsingum um uppruna, framleiðsluhætti og umhverfisáhrif matvæla“.
Þingsályktunartillagan á sér talsverða sögu en hún er hér endurflutt með töluverðum breytingum. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar beindi fyrirspurn til þáverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, Kristjáns Þórs Júlíussonar, á 149. löggjafarþingi um kolefnismerkingar matvæla. Þar var ráðherra spurður um áform ráðuneytisins varðandi merkingar á kolefnisspori. Í svarinu kom fram að starfshópur um merkingar matvæla væri að störfum sem ætti m.a. að skoða þennan þátt. Starfshópur þessi skilaði ítarlegri skýrslu 9. september 2020. Tilgangur skýrslunnar var, með leyfi forseta, „að tryggja betur rétt neytenda til upplýsinga um uppruna, framleiðsluhætti, lyfjanotkun og umhverfisáhrif matvæla ásamt því að finna leiðir til að upplýsa neytendur og fyrirtæki betur um réttindi og skyldur í samræmi við alþjóðlegar skuldbindingar“. Hvað varðar merkingar á kolefnisspori sá starfshópurinn tækifæri fólgin í því að innleiða slíkt því að, með leyfi forseta, „stjórnvöld hafa undirgengist metnaðarfullar skuldbindingar um að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og gæti upplýsingagjöf til neytanda um kolefnisspor matvæla og máltíða stuðlað að því að sett markmið náist“.
Hér í þessum sal höfum við rætt loftslagsmálin vítt og breitt og flest erum við sammála um að loftslagsváin sé stærsta úrlausnarefni samtímans þó að lausnirnar sem við leggjum áherslu á séu kannski ólíkar. Ég trúi og vona að við séum öll á einu máli um að það að minnka kolefnisspor neyslu okkar sé skref í rétta átt. Ég tel einnig að samfélagið í heild sinni muni njóta góðs af gagnsærri og nákvæmari merkingum.
Merkingar á matvöru almennt hafa þróast hratt á síðustu áratugum og merking á kolefnisspori er því rökrétt framhald af upplýsingakröfu neytandans. Kolefnisspor Íslendinga er með því stærsta sem finnst í heiminum. Matvæli eru stór hluti af kolefnisspori heimilanna eða á milli 10 og 30%. Um 68% kolefnisspors matvæla koma frá framleiðslu en flutningur telur um 5%. Til að bregðast við þeim skuldbindingum sem við höfum sett okkur um samdrátt í losun þurfum við að leitast við að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda vegna framleiðslu og einnig neyslu á vörum sem eiga uppruna sinn utan Íslands. Þá ríma merkingar á kolefnisspori matvæla vel við þá stefnu stjórnvalda að Ísland verði kolefnishlutlaust árið 2040.
Merkingar á kolefnisspori matvöru er risastórt loftslagsmál en það er líka neytendamál því að neytendur hafa kallað eftir skýrari merkingum á matvöru sem geri þeim kleift að velja umhverfisvænan kost. Lágt kolefnisspor er þar breyta sem neytendur horfa til. Neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þörfina á að draga úr neyslutengdri losun en skortir einfaldlega oft upplýsingarnar til að framkvæma það. Nú hefur nýtt matvælaráðuneyti verið sett á laggirnar en samhliða því skapast gríðarmörg sóknarfæri, til að mynda í endurskoðun stefnumörkunar hvað varðar innlenda matvælaframleiðslu. Hæstv. ráðherra málaflokksins hefur þegar lagt áherslu á mikilvægi loftslagsvæns mataræðis og aukna framleiðslu grænmetis hérlendis og annarrar matvöru innan lands. Þetta snýst ekki síður um að tryggja fæðu- og matvælaöryggi okkar hér á landi til framtíðar.
Virðulegi forseti. Það er löngu tímabært að leggja drög að merkingum á kolefnisspori matvæla og víða erlendis eru fordæmi fyrir því. Ég tel líklegt að slíkar merkingar verði í auknum mæli teknar upp eftir því sem krafa neytenda um gagnsæja framleiðslu eykst. Ég vil sérstaklega draga fram merkingu á kolefnisspori sem kallast Eco-Score og hefur m.a. verið tekin upp í Belgíu, Frakklandi og Þýskalandi. Eco-Score byggir á Nutri-Score en það er næringarmerki sem er ætlað til að auðvelda neytendum að velja hollari matvæli. Mæld eru jákvæð næringaráhrif, þ.e. magn ávaxta, grænmetis, hneta, trefja og próteins og neikvæð næringaráhrif, sem sagt magn hitaeininga, sykurs, mettaðra fitusýra og salts í hverjum 100 grömmum. Stig eru gefin fyrir jákvæða og neikvæða þætti og með ákveðinni reikniaðferð er einkunnin fundin út. Einkunnin A er sú hæsta og E sú lægsta og einkunnin er túlkuð með litakóða sem gerir neytandanum auðvelt að bera saman vörur innan sama vöruflokks. Eco-Score byggir sem sagt á sömu aðferðafræði en byggir stigagjöfina á kolefnisspori framleiðslu og flutnings og umbúða. Ég nefni þetta sérstaklega þar sem ég tel ákjósanlegt að við vinnum með staðal sem er skýr og byggir á nákvæmri aðferðafræði þó að það yrði vissulega hlutverk þeirra sem framkvæma fýsileikakönnunina að taka afstöðu hvað það varðar.
Víða hafa fyrirtæki tekið upp merkingar á kolefnisspori sinna vara og einnig eru til alls konar reiknivélar sem gera neytendum kleift að reikna út kolefnisspor sitt þótt það sé alla jafna ekki byggt á staðbundnum eða vottuðum upplýsingum. Kolefnismerkingar hafa gjarnan komið úr viðskiptalífinu og eru því sjaldan samhæfðar og standast því stundum ekki samanburð milli sambærilegra vara og einstakra landa. Það er að mínu mati ekki neytendum í hag að hér sé aragrúi merkinga frá ólíkum aðilum með mistraustvekjandi aðferðafræði því þó að það sé vissulega frábært að fyrirtæki sýni samfélagsábyrgð og frumkvæði í merkingum á vörum sínum er það að mínu mati verkefni hins opinbera að skapa skýran ramma sem auðveldar fólki að velja sjálfbærasta kostinn. Það er ljóst að innleiðing merkinga á kolefnisspori matvöru verður að byggja á sterkum grunni upplýsinga og gagna um meðallosun ólíkra vara og það liggur fyrir töluverð vinna að hanna merki sem gefur nægilega skýrar upplýsingar til neytenda. Merkingar af þessu tagi verða að vera nákvæmar og helst vottaðar því mikilvægast er að þær séu samræmdar og byggi á grunni traustra upplýsinga um raunverulega losun. Grænt bókhald er grundvöllur sem mörg fyrirtæki hérlendis hafa innleitt fyrir framleiðslukeðju sína og merkingar á kolefnisspori geta byggt á þeim góða grunni. Það er mikilvægt að útfærsla á merkingu kolefnisspors sé þannig úr garði gerð að hún þjóni tilætluðum tilgangi sínum, að gefa neytendum raunverulega mynd af kolefnisspori vöru.
Með samþykkt tillögunnar yrði stigið mikilvægt skref í þá átt að styðja við loftslagsmarkmið stjórnvalda sem og matvælastefnu Íslands fram til 2030 og innkaupastefnu ríkisins um sjálfbær innkaup. Um leið fengju íslenskir neytendur, framleiðendur og söluaðilar í hendur tæki til að taka þátt í að ná þeim markmiðum.
Virðulegi forseti. Að lokinni fyrri umræðu legg ég til að þingsályktunartillögunni verði vísað til hv. atvinnuveganefndar.