sóttvarnalög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir að leggja þetta mál fram. Það er hárrétt sem fram kom að það er heldur betur búið að kalla eftir aukinni aðkomu þingsins að þessum málum og mér fannst hv. þingmaður rekja það alveg ágætlega hvers vegna það eru svona mörg rök fyrir því að gera það. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar og er, eins og hv. þingmaður kom inn á, búinn að leggja fram mál ásamt félögum mínum í þingflokki Viðreisnar sem gengur lengra og kallar á það að þingið þurfi að staðfesta þær takmarkanir sem settar eru á. Ef ég mætti spyrja hv. þingmann: Telur hún að ekki sé hægt að ganga lengra en hún gerir í sínu máli? Ég hjó nefnilega eftir því að þingmenn Sjálfstæðisflokksins eru, a.m.k. einhverjir, þeirrar skoðunar að það eigi að ganga lengra. Sér hún einhverja meinbugi á því að ganga lengra en þetta og taka þessi mál hérna inn í þingsalinn sjálfan, málstofuna?