sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Eins og ég var að reyna að rekja hér áðan þá óskaði ég eftir því við 1. umr. um sóttvarnalögin á sínum tíma að hv. velferðarnefnd myndi skoða það með hvaða hætti þingið eða nefndin gæti staðfest slíkar reglugerðir eða hvernig aðkoma þingsins gæti verið meiri að því. Þegar málið kom svo út úr nefnd þá svaraði þáverandi hv. varaformaður nefndarinnar því til að það hefði verið mikil umræða um þetta, nú sat ég ekki í velferðarnefnd á þeim tíma, og það hefði verið mat þeirra að það stangaðist á við stjórnskipan okkar, þ.e. að þingið gæti ekki staðfest reglugerðir. Þá kom inn þetta ákvæði um reglulega skýrslugjöf og það varð niðurstaða þingsins að það væri sú leið sem við myndum fara, að fá reglulegt samtal við ráðherra um stöðu mála. Ég myndi fagna því ef hægt væri að ganga lengra, eins og ég sagði hérna áðan. Ég er ekki löglærð sjálf og ég held að þetta væri bara skemmtileg áskorun fyrir okkar helstu lögspekinga að velta því fyrir sér. Hugmynd sem hefur reyndar komið fram er að það þyrfti að gera það með þingsályktun hverju sinni. (Forseti hringir.) En reglugerðir sem slíkar er ráðherra heimilt samkvæmt lögum að setja og það hefur alla vega aldrei verið til hjá okkur það ferli að þingið staðfesti svo reglugerðir ráðherra.