152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:21]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir andsvarið. Þetta er einmitt spurningin um viðbrögðin: Er þetta pólitík eða snýst þetta um heilbrigði og vísindi? Fyrrverandi ríkisstjórn var gagnrýnd af ákveðnum aðilum í upphafi kórónuveirufaraldursins fyrir að láta vísindamenn svara fyrir aðgerðir. Ég sagði að í því fælist mikil pólitík. Pólitíkin fólst í því að verið var að hlusta á vísindamenn. Þetta var á þeim tíma sem við vissum lítið sem ekkert um kórónuveirufaraldurinn. Mér fannst það rétt og ég studdi þær aðgerðir. Þannig birtist þríeykið okkar svolítið sem andlit viðbragða við þessum vágesti okkar og ríkisstjórnin eða viðkomandi ráðherra birtist svo í efnahagsaðgerðunum sem við ætluðum í til að bregðast við stöðunni. En þegar komið er lengra inn í þennan faraldur þá skil ég alveg hvert hv. þingmaður er að fara og það er kannski einmitt spurningin þegar við erum komin inn í þetta til lengri tíma hvernig við bökkum út aftur, sem er alltaf erfiðara.

Mig langaði líka aðeins að bæta því við að ástæðan fyrir því að ég fer þessa leið, (Forseti hringir.) og það var bent á að þetta gæti ekki farið fyrir þingið, er að (Forseti hringir.) viðbrögðin þurfa að vera mjög snögg þegar upp kemur faraldur. (Forseti hringir.) Þess vegna fór ég ekki lengra í mínu frumvarpi, svo hægt væri að bregðast við strax ef hætta væri til staðar.

(Forseti (LínS): Hv. þingmenn eru minntir á að þegar ræðutíminn er styttur í eina mínútu þá er eðlilegt að virða það.)