sóttvarnalög.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið og þakka honum líka fyrir að minna okkur á að Sjálfstæðisflokkurinn er stærsti flokkurinn á þingi.
Hv. þingmaður spyr hvort hæstv. ráðherra hafi hafnað því að viðhafa þetta verklag. Nei, ég þekki ekki til þess. Ég ræddi þetta við samstarfsfólk mitt, eins og ég geri nú yfirleitt, áður en ég lagði þetta mál fram og hæstv. ráðherra hafði að sjálfsögðu ekkert við það að athuga að ég gerði slíkt. Mér var svo sem ljóst að verið væri að endurskoða sóttvarnalögin en ég vildi þá koma þessum sjónarmiðum mínum og hugmyndum inn í það ferli. En alveg eins og ég rakti áðan þá átti þetta samtal sér stað þegar við endurskoðuðum sóttvarnalögin síðast. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður kom inn í þá umræðu eða hverjar áherslurnar voru þá í velferðarnefnd frá Miðflokknum, en ég veit að við vorum alla vega nokkrir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem ræddum þetta og veltum þá upp nálguninni. Þá snýst þetta um það hvernig hægt er að bregðast við slíkum vágesti strax og vera með víðtækar aðgerðir, á sama tíma og við ætlum að vera í einhvers konar samráði og samtali við þingið.