152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:27]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Ég held að upplýsingagjöfin til þingsins hafi ekki verið slæm miðað við þau lög sem við erum að vinna eftir. Ég veit að ráðherrann hefur ávallt brugðist vel við því, hvort sem um er að ræða núverandi hæstv. heilbrigðisráðherra eða fyrrverandi heilbrigðisráðherra, að koma til samtals við þingið eða velferðarnefnd þegar svo ber undir. Og ég veit að hv. velferðarnefnd hefur nú haldið nokkra fundi um þetta mál.

Við samþykktum hér breytingar á sóttvarnalögum sem gerðu ráð fyrir því ferli sem við höfum svo unnið eftir. Þá var þessum sjónarmiðum vissulega varpað fram en niðurstaðan var sú að bregðast við með þeim hætti að ráðherra kæmi hér til skrafs og ráðagerða við okkur í einhvers konar samtali, mjög reglulega. Ég hafði kallað eftir þessum breytingum í samtali við hæstv. ráðherra. Ég var orðin óþreyjufull þannig að ég ákvað að leggja fram þetta frumvarp. Hv. þingmaður spyr svo: Er hægt að ganga lengra? Mögulega er hægt að finna einhverja lausn á því? Ég hef ekki fundið hana enn þá en ég vænti þess. Þess vegna erum við einmitt með þetta frábæra þing og málin fara í þrjár umræður þannig að ef hægt er að finna betri lausn sem þingið getur sameinast um þá er það bara hið besta mál.