sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Hér er mælt fyrir frumvarpi þar sem gert er ráð fyrir kynningu ráðherra á sóttvarnaaðgerðum fyrir einni tiltekinni þingnefnd sem fær svo ekki að hafa neitt um þær sóttvarnatakmarkanir að segja frekar en þjóðþingið í heild. Mér finnst þetta alveg ofboðslega snubbótt frumvarp, verð ég að segja. Eftir ýmsar yfirlýsingar þingmanna þessa flokks þá kemur mér í raun á óvart hvað þetta gengur alveg ofboðslega skammt. Ég er sjálfur þeirrar skoðunar að það skipti mjög miklu máli að við breytum sem allra fyrst lögum á þann veg að allar verulega íþyngjandi sóttvarnatakmarkanir þurfi að fá staðfestingu þjóðþingsins eða þá þingkjörinnar nefndar innan ákveðins tímafrests eftir að sóttvarnatakmarkanir eru lagðar á. Mér finnst það algerlega fráleit hugmynd að það sé einhver stjórnskipulegur ómöguleiki að reglugerðir séu lagðar fyrir þingið. Það þarf ekki að heita reglugerð, (Forseti hringir.) það er hægt að gera þetta í formi þingsályktunar eins og Viðreisn hefur lagt fram. (Forseti hringir.) En ég vil spyrja hv. þingmann hvort hún hafi engar áhyggjur af því að þetta frumvarp geti fest í sessi mjög óheppilegt fyrirkomulag, með sýndarsamráði.