152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Þetta er nákvæmlega það sem þingflokkur Pírata er búinn að vera að kalla eftir allan þennan faraldur og við höfum aldrei fengið svör. Í munnlegri skýrslu ráðherra núna fyrr í dag viðurkenndi hann í rauninni að það væri mjög mikið byggt á tilfinningu og reynslu þeirra sem væru búnir að vinna við þetta dagsdaglega síðastliðin tvö ár, ekki t.d. á sviðsmyndagreiningum um að ef við setjum takmarkanir úr 30 í 50 í staðinn fyrir 30 í 100 þá muni smitum fjölga um 500 á dag eða eitthvað svoleiðis. Þess vegna eru það 50 en ekki 100. Við fáum aldrei svoleiðis útskýringu þó að við biðjum um hana. Ég veit ekki hverju þetta mál bætir við því að það er þegar skylda stjórnvalda að rökstyðja ákvarðanir sínar. Þegar við biðjum um upplýsingar á bara að draga það skjal upp úr skúffu og leggja það á borðið hjá þingnefndinni. En það er ekki gert af því að skjalið er ekki til. Samt á að búa það til.