152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:37]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir. Nú átta ég mig ekki alveg á því hvort þingmaðurinn er fyrst og fremst pirraður yfir því að skjalið sé ekki til. (BLG: Já.) Já, ég heyri það á hv. þingmanni. Að það snúist kannski ekki um það að þetta sé svo ömurleg leið sem ég er að leggja hérna til. En ef staðan er sú að þessar greiningar eru ekki til, eins og hv. þingmaður heldur hér fram, þá held ég að það hljóti að styrkja heilbrigðisyfirvöld í því ef þau þurfa að koma til fundar við þingnefndir Alþingis og skrifa ítarlega skýrslu með röksemdum fyrir því af hverju gripið er til aðgerða. Það hlyti að vera aukin pressa á það að þetta skjal yrði einmitt til og það skjal yrði birt og ákvarðanir væru teknar út frá slíkum sviðsmyndagreiningum og þeirri þekkingu sem safnast hefur saman. Það er í rauninni krafan. Þannig að ég velti því upp: Er hv. þingmaður ánægður með ástandið eins og það hefur verið? Nei, mér heyrist ekki. En telur hv. þingmaður að þetta mál myndi engu bæta við? Ekki heldur? Nei, ókei. Ég er alla vega að reyna að leggja mitt af mörkum til að gera ástandið betra.