152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:39]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S):

Forseti. Ég held að það skipti ofboðslega miklu máli í góðu lýðræðisríki að maður reyni að temja sér að allir þeir öryggisventlar sem í boði eru séu bæði til staðar og þeim sé ekki mætt af óþarfa tortryggni gagnvart persónum og leikendum hverju sinni. Ég held að við höfum að mörgu leyti staðið okkur mjög vel í þessum faraldri, skilaboð og markmið voru skýr í byrjun faraldurs og á alla mælikvarða stóðum við okkur vel, sem við megum vera stolt af. Ég held hins vegar að það sé ákveðin synd að við misstum, að mínu mati, smá tök á umræðunni um að það fari ekki saman að vilja hlusta á vísindi og okkar besta fólk í þeim vísindum og að eitthvað sé pólitískt. Að mínu viti getur það mjög vel farið saman og er mjög æskilegt að fari saman því að allt er pólitískt, ekkert er hægt að aftengja algerlega pólitíkinni. Eins og var komið inn á áðan bera stjórnmálin auðvitað síðan alla ábyrgð. Því er algerlega eðlilegt að stjórnmálin hafi aðkomu að þeim aðgerðum sem þarf að grípa til en að sjálfsögðu, eins og með eiginlega öll önnur verkefni á vettvangi stjórnmálanna, að það sé byggt á bestu gögnum sem í boði eru frá okkar besta fólki.

Ég skil þetta mál þannig að það sé viðleitni til að reyna að ná meiri tengingu, sem ég held að hafi vantað undanfarin tvö ár, skýrari tengingu við lýðræðislega kjörna fulltrúa þjóðarinnar til þess að ná betur utan um mjög stórar aðgerðir þegar verið er að takmarka frelsi fólks. Þrátt fyrir að það hafi að flestu leyti eflaust verið hægt að færa mjög fín rök fyrir því að það hafi verið nauðsynlegt þá er vont að það varð ákveðin aftenging á milli þeirra sem báru á því ábyrgð, fólksins sem kaus það fólk til að bera á því ábyrgð og aðgerðanna sjálfra.

Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir fór mjög vel yfir aðdragandann að þessu máli. Ég hef þá skynjun, þrátt fyrir að ég sé ekki búin að vera í þessu húsi lengi, að umræðan eins og hún var hérna áðan hefði mögulega verið óhugsandi fyrir ári, tala nú ekki um fyrir tveimur árum, og ég fagna því. Ég held að það sé merki um að við sjáum öll fyrir endann á þessu ástandi, viljum gjarnan reyna að berja í bresti og hugsa til framtíðar hvernig við viljum hafa hlutina ef svo leiðinlega vill til að við verðum aftur í þessum sporum, við séum kannski að leyfa okkur að horfa meira hlutlægt og kannski með örlítið meiri gagnrýni, sem er bara eðlilegt, á það hvernig við viljum hafa þetta kerfi. Ég fagna því.

Eins og komið var inn á áðan eru einhverjir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem eru á þessu frumvarpi sem hefðu gjarnan viljað ganga lengra. Ég get gengist við því að ég er einn þeirra þingmanna. Ég held hins vegar að á þessum tímapunkti sé kannski ekki ástæða til að gera lítið úr því að ef uppi er óvissa um hvað er tækt að gera í þeim efnum þá er það bara staðan. Ég heyrði í umræðunni hérna áðan og skil hana mætavel og tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að ég held að það sé einhugur um það, ég heyri það í þessari umræðu, hvernig svo sem það er gert, að lýðræðislega kjörnir þingmenn í þessum sal hafi meira um þessar aðgerðir að segja. Þá þarf að finna samspil á milli þess sem er lagalega og stjórnskipulega tækt. Ég ætla að setja strax þann fyrirvara að ég er engin manneskja til að rökræða það, til er mér klárara fólk sem væri eflaust betur til þess fallið og ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur að það væri eflaust gagnlegt að þeir aðilar kæmu fyrir nefndina til að ræða þetta. Það samspil þarf að ganga upp og það verður auðvitað að hafa í huga að prinsippið um þessa tengingu við lýðræðið er mikilvægt. En það skiptir auðvitað miklu máli þegar verið að tala um farsóttir að hægt sé að grípa snaggaralega til aðgerða.

Ég held að á næstu vikum, þegar við skoðum þetta mál og það mál sem er nú þegar búið að minnast á, frumvarp þingflokks Viðreisnar sem mér finnst líta ágætlega út, með þeim fyrirvara um að það þarf bara að skoða hvað sé tækt í því, þá þurfi að meta hvernig best væri að koma þessari umræðu og eftir atvikum ákvarðanatöku eða einhvers konar samþykki, eða hvernig svo sem það er síðan á endanum, hingað inn í þingsal. Ég held að það væri mjög gott. Ég tek undir með hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur, ég er til í allt það samtal um hvernig það er best gert. Að öðru leyti held ég að þetta sé mjög jákvætt skref. Þetta eru líka ákveðin skilaboð inn í framtíðina um að þingið hafi meiri aðkomu og ég held að það sé mjög farsælt.