sóttvarnalög.
Frú forseti. Ég vil þakka fyrir bara býsna góða ræðu, ég er sammála mörgu af því sem hér kom fram. Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún sé sammála því sjónarmiði að við breytingar á sóttvarnalögum ætti að horfa til þess, rétt eins og er gert sums staðar í nágrannalöndunum, að gerð verði krafa um að allar verulega íþyngjandi sóttvarnatakmarkanir þurfi að fá samþykki annaðhvort þingsins í heild eða þingkjörinnar nefndar og hvort hv. þingmaður geti hugsað sér að styðja hvort sem er frumvarp eða breytingartillögur þess efnis við endurskoðun sóttvarnalaga í vor.