152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:47]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka fyrir þetta fína andsvar. Stutta svarið er, og þá endurtek ég það sem kom fram í ræðu minni hér áðan: Já. Að því gefnu að við finnum samspil á milli einhvers konar samþykkis eða ákvörðunartöku lýðræðislega kjörinna fulltrúa, aðkomu þeirra, og þess fyrirvara að það verður að vera svigrúm ef grípa þarf í einhvers konar hemil jafnvel innan einhverra klukkustunda, ef við getum ímyndað okkur svo hrikalegt ástand, en það gæti gerst. Þannig að ég held að það verði að finna samspil þar á milli. Ég held að það væri óábyrgt að gera ófrávíkjanlega kröfu um að kalla þyrfti þingheim saman algjörlega burt séð frá aðstæðum, en ef það væri hægt að finna samspil þar á milli held ég að það gæti verið gagnlegt. Að öðru leyti — nú man ég ekki alveg nákvæmlega hvernig var orðað en ég endurtek: Ef hægt er að finna flöt á því stjórnskipulega sem eru kannski meiningar um að sé eilítið flóknara en það hljómar, ég ætla ekki að gerast dómari í því en þigg umræðu um það, ef það stenst stjórnskipulega að það vald sé hjá þingheimi gagnvart ráðherra, þá endurtek ég að ég er til í það. Það eru þessi tvö atriði sem þarf bara að ná saman um. En stutta svarið er: Já.