152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:48]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það var ánægjulegt svar og ég hlakka til að berjast fyrir breytingum í þessa veru með hv. þingmanni. Ég er hissa á því að ekki hafi verið meiri hljómgrunnur fyrir þessu innan þingflokks Sjálfstæðisflokksins yfirleitt, svona eftir miklar yfirlýsingar oft á tíðum undanfarna mánuði. Ég held að margir sem lengi hafa talað í þessa veru hefðu viljað fá meiri stuðning, t.d. á síðasta kjörtímabili. Þetta er bara hið besta mál, held ég. Já, ég ætla bara að segja þetta gott.