152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:50]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Forseti. Ég ætla aðeins að draga í land með það sem ég gaf til kynna áðan. Það væri tvímælalaust þægilegra að hafa þetta ákvæði í lögum en það þýðir ekki að ég haldi að það skili neinum árangri þrátt fyrir það. Það væri aðeins stærri hamar sem þingið gæti nýtt sér auk þeirra venjulegu verkfæra sem það hefur hvort sem er til að fá nákvæmlega sömu upplýsingar eða alla vega til að biðja um nákvæmlega sömu upplýsingar. Hv. þingmaður talaði hérna um ábyrgðina og hvar hún liggur í þessu. Mér finnst svona aðeins grautað með mörkin á því hvar framkvæmdarvald og löggjafarvald og eftirlitsvald liggur ef það á t.d. að fara með staðfestingu á ákvarðanatöku eða á reglugerðum hingað inn í þingsal. Ég átta mig ekki alveg á því vegna þess að þá eru þingmenn farnir að taka ákvarðanir sem varða jafnvel eftirlitshlutverk þeirra seinna meir. Við upplifðum það á síðasta kjörtímabili að sett var reglugerð sem ekki var stoð fyrir í lögum. Það fór bara sína réttu leið í dómskerfinu. Ef þingið hefði kvittað upp á slíka reglugerð þá veit ég ekki alveg hvar við værum.

Staðan núna er að það er skýrt að ráðherra ber ábyrgð á þessum málaflokki og þessum ákvörðunum á allan þann hefðbundna hátt sem varðar ráðherraábyrgð og þess háttar. En það sem ég hef upplifað er að þeirri ábyrgð hefur verið varpað, alla vega að því er virðist, á þríeykið því að þau koma og tala fyrir ákvörðunum. Og sú ábyrgð, eins og formaður Sjálfstæðisflokksins hefur talað um, að það sé lagaleg skylda að aflétta takmörkunum þegar ekki er þörf á þeim lengur, er búin að vera allan tímann, sem sagt að ráðherrar þurfa að taka tillit til fleiri hluta (Forseti hringir.) en bara sóttvarnasjónarmiða. Menn þurfa að horfa víðar á sjónarsviðið en hafa einmitt ekki gert það (Forseti hringir.) og það er kannski eitthvað sem þetta mál getur lagað.