sóttvarnalög.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég held að við höfum lært mjög margt á þessum tveimur árum einmitt varðandi löggjöf og ábyrgð og mörkin þar á milli. Ég held að það sé hægt að segja að þetta sé löggjöf sem var svolítið úti í horni undanfarin ár. Þetta hefur blessunarlega ekki verið eitthvað sem við þurftum að vera mikið með augun á. Eins og þingmaðurinn rakti ágætlega þá komu í ljós ákveðnir agnúar á hvaða heimildir voru þar, kvitt og klárt, eins og við gerum kröfu um í okkar ágæta samfélagi.
Með allri virðingu þá er ég nú ekki sammála því að ríkisstjórnin hafi hafnað ábyrgð á því sem hér hefur verið gert undanfarin tvö ár, það má alveg halda því til haga að margt var vel gert en svo er annað sem má kannski spyrja spurninga um. Í mínum huga er algerlega kýrskýrt að ráðherra viðkomandi málaflokks ber ábyrgð á þeim málaflokki. Ég skil að það komi mörgum kannski skringilega fyrir sjónir sem sjá fyrir sér ríkisstjórnina meira sem eina heild, en það er mjög ríkt ráðherraræði gagnvart málefnum hér á landi, sem margir setja kannski spurningarmerki við, en sú er staðan. Ég tek líka undir að það er algerlega skýrt að þar er meira undir en bara sóttvarnir. Við erum með sóttvarnalækni sem ber ábyrgð á sóttvörnum. En það er ráðherrann sjálfur sem ber vissulega meiri ábyrgð en eingöngu á sóttvörnum. Bara algerlega sammála. En ég er kannski ekki sammála því að viðkomandi ráðherrar hafi varpað þeirri ábyrgð frá sér.