152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[17:57]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Hildi Sverrisdóttur fyrir mjög fína ræðu. Hún kom inn á mörg lykilatriði sem mér finnst þurfa að taka tillit til í þessari umræðu og notaði orð sem skiptir miklu máli, þ.e. öryggisventill. Við erum með Alþingi sem hefur ekki bara það hlutverk að vera löggjafi og fjárveitingavald og það allt saman, heldur hefur þingið líka eftirlitshlutverk gagnvart framkvæmdarvaldinu. Ég er þeirrar skoðunar að við höfum verið svolítið föst í umræðu sem við tengjum allt of mikið tilteknum einstaklingum, sem bera vissulega ábyrgð og hafa völd, annars vegar ráðherra og hins vegar sóttvarnalæknir, þríeykið og allt þetta. Við þekkjum það mætavel. Mér finnst menn missa oft sjónar á því þegar við erum að tala um hvernig við eigum að breyta þessu til lengri tíma að þessar persónur verða ekkert endilega á sviðinu næst þegar reynir á þetta. Það getur verið fólk með allt önnur viðhorf, allt önnur sjónarmið, sóttvarnalæknir sem er meira í ætt við þann sænska sem tók allt öðruvísi á faraldrinum en við gerðum. Við gætum verið með heilbrigðisráðherra sem hefur allt aðrar skoðanir á hlutunum en sá sem nú situr eða forveri hans í starfi. Það gætu verið einhverjir trumpistar eða hvaðeina.

Mín spurning, af því að orðið öryggisventill kom upp, er þessi: Ef þingið á að vera raunverulegur öryggisventill, ef þingið á að hafa raunverulegt eftirlitshlutverk í þessum málum þar sem er verið að grípa alveg svakalega inn í eðlilegt, daglegt líf fólks — auðvitað af því að það er ástæða fyrir því, en engu að síður er verið að grípa nokkuð harkalega inn í daglegt líf fólks — er þá nóg að þetta sé rætt aðeins í velferðarnefnd umfram það að þetta sé rætt í ríkisstjórn, það séu þá nokkrir þingmenn til viðbótar við þá þingmenn sem sitja í ríkisstjórn hverju sinni? (Forseti hringir.) Er það nægjanlega mikið eftirlit? Getur það flokkast sem skilvirkt eftirlit með framkvæmdarvaldinu?