152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[18:03]
Horfa

Hildur Sverrisdóttir (S) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta andsvar. Hann kemur hér inn á svo merkilegt og skemmtilegt viðfangsefni að mér þykir mjög leiðinlegt að ég hafi svona stuttan tíma til þess að bregðast við því. Kannski tökum við þetta í einhverju kaffispjalli síðar. Ég held nefnilega að þetta sé ákveðinn kjarni máls sem skiptir ofboðslega miklu máli. Ég tel að ráðamenn hér hafi borið svo mikla virðingu fyrir þessu verkefni, sérstaklega í byrjun faraldurs, að þau vildu í raun aftengja sig vísindunum. Ég held að þar hafi góður hugur staðið að baki og hafi verið að mörgu leyti mjög skynsamlegt, ég tala nú ekki um ef við hugsum aðeins um heiminn í heild og þá kannski sérstaklega Bandaríkin og hvernig haldið var á málum þar. Hins vegar held ég að það skref hafi verið aðeins of langt því að stjórnmál í þessu máli eins og öllum öðrum eiga auðvitað að snúast um pólitíska ábyrgð. En hvernig tekur þú ákvörðun um þá ábyrgð? Jú, með bestu gögnum til þess bærra og bestu aðila hverju sinni. Það á að fara saman.