sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir andsvarið. Af því að hún spyr um þær breytingar sem við erum að leggja til á sóttvarnalögum þá er okkar hugsun algerlega skýr með það að það á ekki að kippa svigrúmi stjórnvalda úr sambandi, að þau geti brugðist fljótt vel og örugglega við. Okkar hugsun er að þegar ástand hefur varað lengi sé kominn tími til þess að þingið fái að hafa eitthvað um það að segja. Og bara svo ég vitni aðeins í greinargerðina með frumvarpi okkar, með leyfi forseta:
„Faraldurinn hefur þó varpað ljósi á tiltekna annmarka í lögum um sóttvarnir þegar kemur að langvinnum takmörkunum réttinda á grundvelli laganna. Flutningsmenn telja að þegar aðstæður, sem geta verið grundvöllur opinberra sóttvarnaráðstafana, standa yfir í lengri tíma sé öryggis borgaranna best gætt ef ákvarðanir sem takmarka stjórnarskrárvarin réttindi eru ekki einungis teknar af handhafa framkvæmdarvalds. Er að þeirra mati nauðsynlegt við slíkar aðstæður að tryggja aðkomu löggjafarvaldsins að töku jafn afdrifaríkra ákvarðana.“
Þannig að ég les það þannig að við séum öll svolítið sammála um það að ríkisstjórn á hverjum tíma verður auðvitað að hafa þó nokkuð mikið svigrúm til að grípa fljótt inn í þegar við stöndum frammi fyrir svona ógn. En svo jafnframt að þegar við erum í svona rosalega langdregnu, langvarandi ástandi þar sem mikið er undir, þar sem við tökum svona mikil réttindi af borgurunum, þar sem svona miklum fjármunum er dælt úr ríkissjóði, þar sem svona miklar takmarkanir eru fyrir skólabörn og heilbrigðiskerfið í þeirri stöðu sem það er, þá þurfi að víkka út ákvarðanatökuna og ferli. Þannig að ég les það nú þannig að við séum sammála að því leyti um grunnstefið í þessu.