152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[18:24]
Horfa

Flm. (Bryndís Haraldsdóttir) (S) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanninum fyrir svarið. Vangaveltur mínar lúta að því að við erum að tala um frekari ráðstafanir. Hv. þingmaður fór ágætlega yfir það í ræðu sinni, sem ég tek svo heils hugar undir, að þegar við hér á þingi erum að ræða þetta þá erum við ekki að tala um persónur og leikendur í dag. Við erum að tala um framtíðarfyrirkomulag þar sem við getum engan veginn spáð fyrir um hverjir verða í einhverjum hlutverkum og hver þeirra sýn á hlutina verður. Þetta snýst um frekari ákvarðanir, þegar eitthvað hefur varað í þrjá mánuði, sem ég velti fyrir mér. En eins og ég sagði hér áðan tek ég undir mjög margt sem kemur fram í ræðu hv. þingmanns. Ég tel að hv. velferðarnefnd sé núna komin með í það minnsta tvær hugmyndir og svo væntanlega frumvarp frá ráðherra, sem ætti að gera þinginu auðvelt um vik að finna betri lausn á því verkefni sem það hefur staðið frammi fyrir á síðustu misserum, betri leið til að aðlaga umræðuna og tengja lýðræðiskjörið þing inn í þá umræðu.

Ég vildi spyrja hvort hv. þingmaður sé mér ekki sammála í því, og það er kannski líka hluti af hugmyndafræðinni á bak við þessa nálgun — ég ímynda mér að ef hertari aðgerðir þyrfti að leggja fram í þingsályktunartillögu og fara í eðlilega umræðu hér eins og þingsályktunartillögur gera á þinginu, þá myndum við bregðast við með þeim hætti að vilja hafa meiri fyrirsjáanleika í aðgerðum þegar til lengri tíma litið. Það er kannski það sem sóttvarnalæknir kom snemma inn á, að við yrðum væntanlega í þessu ástandi að herða og losa um skrúfuna, ég held að það hafi verið orðalagið sem notað var. Það kann vel að vera að það hafi virkað vel á sjúkdóminn sem slíkan eða útbreiðslu hans. En ég er býsna hrædd um, og nú viðurkenni ég að ég er að líta í baksýnisspegilinn þannig að ég er ekki að álasa þeim sem hafa tekið þessar ákvarðanir, en þegar við lítum í baksýnisspeglinum og veltum fyrir okkur reynslunni, hvaða áhrif það hefur haft að vera í þeirri lest þar sem við eigum að herða og losa, einhver hefur talað um hringlandahátt, þá hefur þetta auðvitað haft ofboðslega mikil áhrif á atvinnulífið og samfélagið allt þar sem fyrirsjáanleikinn hefur verið enginn.