152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[18:26]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Í framhaldi af þessu, áður en ég bregst beint við því sem hv. þingmaður sagði, þá vildi ég nefna það í þessu sambandi, af því að við erum að tala um aðkomu þingsins, að þetta hefur verið þannig að auðvitað kemur ráðherrann hér og gefur þinginu skýrslu. Við erum auðvitað með fjármálaráðherra sem er með sínar efnahagsráðstafanir. Það hefur nú verið ágætissamstaða um margt í því öllu, sérstaklega þegar kemur að einhverjum hröðum aðgerðum sem kallað er eftir. Það sem mér hefur hins vegar fundist vera galli á þessu öllu, þrátt fyrir að menn hafi nú ákveðið að setja þetta inn í þingið í formi einhverrar skýrslugjafar eða þess háttar, er að það vantar svo mikið upp á, sérstaklega núna í þessum ómíkron-faraldri, að þegar er verið að herða eða þegar er verið að gera afléttingaráætlun eða þegar verið er að kynna einhverjar efnahagsráðstafanir á tröppum ráðherrabústaðarins eða eitthvað, að það sé þá gert annaðhvort samdægurs í þinginu, með einhverri skýrslugjöf eða eins fljótt og hægt er. Við vorum að ræða afléttingaráætlun ríkisstjórnarinnar í dag. Auðvitað hefði verið miklu eðlilegra og betra fyrir alla lýðræðislega umræðu í landinu að sú umræða hefði farið fram algerlega í samhengi við það þegar afléttingaráætlunin var kynnt.

Eins er með efnahagsráðstafanirnar. Við höfum alveg vitað það, alveg eins og þessar takmarkanir allar sem verið er að grípa til, það eru bara ákveðin vopn sem við höfum í vopnabúrinu og þekkjum orðið ágætlega, og það sama gildir um efnislegu ráðstafanirnar. Þannig að ég hef saknað þess svolítið, en ætla ekki að gera ríkisstjórninni illt til og segja að það sé gert vitandi vits, að við getum ekki tekið umræðuna hér í þessum sal þegar verið er að taka ákvarðanirnar og þegar verið er að kynna ákvarðanirnar gagnvart almenningi. Ef ráðherrar geta verið á blaðamannafundum að tala til almennings einhvers staðar úti í bæ þá geta þeir alveg verið sama dag hér í þinginu og sagt sömu hlutina og boðið upp á einhvers konar samtal um það og þannig jafnvel fengið hér gott veganesti fyrir áframhaldandi umræðu.