152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[18:34]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Það er umhugsunarvert þegar ráðherraræðið er orðið svo rótgróið að fólki sé farið að finnast það nánast óhugsandi og það sé einhver ómöguleiki sem standi í vegi fyrir því að Alþingi fari með það vald sem það fer með og þá ábyrgð sem því ber þegar kemur að takmörkun stjórnarskrárvarinna réttinda í þágu almannahagsmuna og að ákveða hvar mörkin liggja þar. Hér hefur verið talað um þetta frumvarp frá þingflokki þingmanna Sjálfstæðisflokksins. Það hefur kannski aðallega verið gagnrýnt á þeim nótum að það gangi ekki nógu langt. En mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hann sé sammála mér um að svona lagabreyting, svona frumvarp eitt og sér, geti í raun verið skaðleg og fest aðkomuleysi Alþingis í sessi, þetta ráðherraræði sem við erum að gagnrýna hér. Þetta geti verið ávísun á einhvers konar sýndarsamráð og í raun unnið gegn þeim markmiðum sem við hv. þingmaður erum sammála um, aukna aðkomu og raunverulega afgerandi aðkomu Alþingis að ákvörðunum sem varða líf og heilsu og réttindi og frelsi landsmanna.