sóttvarnalög.
Herra forseti. Ég vil þakka hv. þm. Bjarna Jónssyni fyrir ræðuna. Hann fór mjög vel yfir mikilvæga þætti. Sérstaklega fannst mér gott að heyra hann nefna það að þegar við erum að tala um frelsi fólks þá snýst það líka um fólk sem þarf að halda sig til hlés og þarf svo sannarlega á því að halda að vera með einhverjum hætti varið og finnur kannski öryggiskennd og skjól í því þegar það eru ráðstafanir í samfélaginu til að draga úr útbreiðslu veirunnar. Þetta er mikilvægur punktur og eitt af því sem þarf auðvitað alltaf að vega og meta. En ég vildi gjarnan fá að spyrja hv. þingmanninn út í nokkur atriði, bæði núna og svo á eftir í öðru andsvari. Fyrst þetta með að við erum auðvitað ekki 63 heilbrigðisráðherrar eða sóttvarnalæknar hér á Alþingi. Það er auðvitað alveg hárrétt. Heilbrigðisráðherra er stjórnmálamaður og aðrir í ríkisstjórninni eru stjórnmálamenn. Allir þingmenn og stjórnmálamenn geta hlustað eftir ráðleggingum vísindamanna, það er ekki sáldrað einhverju töfradufti yfir fólk þegar það sest inn í Stjórnarráðið og það fær einhverja visku sem það hefur ekki inni í þessum sal. Við erum öll, alla daga, að reyna að beita dómgreind okkar til að komast að niðurstöðu og finna málum farveg og finna einhverjar lausnir. Vanmetum ekki þingið í því. Það er enginn að tala fyrir því, held ég, að hér þurfum við að vera að takast á um það á hverjum einasta degi hvort það eigi að vera 1 metra regla eða 2 metra regla eða hvort það eigi að vera 50 manna samkomutakmarkanir eða 70 eða hvað það er. Þetta snýst kannski meira um það að þegar faraldurinn dregst á langinn sé þingið með tæki og tól til að vera sá öryggisventill sem það er og geta sinnt sínu öryggishlutverki.
Ég ætla bara að spyrja hv. þingmann: Ef það væri þannig að Sigríður Andersen væri heilbrigðisráðherra og flokkssystkini hennar hefðu meiri hluta á þingi eða meiri hluta í ríkisstjórn, (Forseti hringir.) þætti honum þá betri tilhugsun að þingið yrði einhvers konar öryggisventill? Ef sænski sóttvarnalæknirinn væri (Forseti hringir.) á Íslandi yfir sóttvörnum, liði þá hv. þingmanni betur með það að þingið yrði einhvers konar öryggisventill? (Forseti hringir.) Er ekki betra að tala um þetta óháð persónum og leikendum og óháð því hvers konar ríkisstjórn situr á hverjum tíma.
(Forseti (BLG): Forseti minnir ræðumenn á ræðutíma. Hálf mínúta fram yfir er athyglisvert.)