152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[18:52]
Horfa

Bjarni Jónsson (Vg) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Við erum svona að tala okkur saman í sömu átt, heyri ég. Ég legg áherslu á að það eru ákveðnir verkferlar og það eru ákveðin hlutverk sem hvert og eitt okkar hefur. Það er framkvæmdarvaldið, við höfum heilbrigðisráðherra með sitt hlutverk, við höfum vísindamennina og sóttvarnalækni. Það hafa allir sín hlutverk. Ég treysti því að ef það er hlustað á vísindamenn og við förum eftir þessu ferli þá skiptir ekki öllu máli hverjir sinna þeim verkefnum sem snúa að framkvæmdarvaldinu ef þeir fylgja þessum ferlum og hlusta á vísindamennina. Við höfum þessi tækifæri sem við höfum haft til þess að fá þau reglulega hér til þess að ræða við þau, gefa skýrslu, skiptast á skoðunum eða ræða við þau í nefndum og annað slíkt og eftir atvikum getur þingið gripið inn í ef ástæða þykir til með þeim leiðum sem þar eru. Auðvitað á þingið að vera öryggisventill, bæði gagnvart aðgerðum og aðgerðaleysi fólks. Ég held að við séum bara sammála um það og ég held að þetta hafi verið í ágætisfarvegi. Ég vænti þess að það verði það áfram þó að við munum kannski breikka umræðuna og taka hana víðar af því að við þurfum að ræða svo marga fleiri fleti á því hvernig við ætlum að koma landinu upp úr þessu ástandi. Og þetta er ein hlið á því.