152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[18:54]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir. Þetta er alveg rétt, við erum að róa öll í sömu átt. Þó að við séum ekki sammála um allt þá erum við þó a.m.k. öll sammála um að þessi umræða er mikilvæg og við erum að draga lærdóm af faraldrinum og velta því fyrir okkur hvernig er betra að hafa hlutina til lengri tíma. Þess vegna er svo gott að þetta þingmál sem við erum að ræða hér hafi komið inn þótt mér finnist það ganga of skammt. Það þroskar umræðuna og færir okkur nær einhverri lausn sem er heppileg.

En aðeins að því sem fram kom í ræðu hv. þm. Bjarna Jónssonar áðan þegar hann var að tala um traustið. Ég er svo hjartanlega sammála því að þegar ógnin var mikil, þegar við vorum hrædd og óttaslegin og vissum ekki hvernig þetta myndi þróast, þá var það algerlega ómetanlegt að hafa t.d. þríeykið, svo við tölum um það, sem talaði fyrir samstöðu. Við hlýddum Víði og gengum um gólf fyrir Þórólf og allt þetta. Þetta skipti alveg fáránlega miklu máli. Það hefðu örugglega engir stjórnmálamenn náð þessu. Þetta var náttúrlega mikilvægt fyrst í faraldrinum. Það traust skipti verulega miklu máli. En síðan breytist faraldurinn eins og gengur og það fer að koma meiri áherslumunur í ljós eftir því sem ógnin verður minni og eftir því sem bólusetningarnar verða víðtækari.

Þá kem ég að því sem ég ætlaði að spyrja hv. þingmann um, af því að hann var að tala um að traustið skipti miklu máli, t.d. út af bólusetningum. Nú erum við að tala um aðkomu þingsins að þessum málum. Ég held að ég fari rétt með, ég hef ekki heyrt einn einasta þingmann gjalda varhuga við því að við myndum öll láta bólusetja okkur. Ég held að það hafi verið mikil samstaða og ekkert þurft þríeykið til eða embættismenn eða aðra til að sannfæra þingmenn um það að öll ættum við að láta bólusetja okkur. Ég veit bara um einn stjórnmálamann sem settist hér á þing í kringum jólin, sem er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi, hann er eini stjórnmálamaðurinn sem ég veit um sem hefur (Forseti hringir.) talað með þeim hætti að það gæti kannski fælt fólk frá því að láta bólusetja sig. (Forseti hringir.) Þannig að mig langar að spyrja hv. þingmann: Hefur hann orðið var við það í pólitíkinni að menn hafi goldið varhuga við bólusetningum?