sóttvarnalög.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Stutta svarið er nokkuð einfalt. Ég tel og treysti því að aðkoma Alþingis hafi verið mikilvæg í þessari umræðu og gagnvart ákvörðunum og í framhaldinu þannig að það er ekkert breytt í því. Aðkoman hefur verið mikilvæg, er mikilvæg og verður það áfram og ég hef fullt traust á Alþingi í þeim efnum, ekki síður en ráðherra eða öðrum. Ég kom að því að við værum með mismunandi hlutverk og slíkt og verkefni líka. Það er smávegis verkaskipting þó að hluta til séu verkefnin þau sömu og hann er þá heilbrigðisráðherrann. Ég tel að aðkoma Alþingis sé mikilvæg og hefur verið það og mun verða það og við þurfum bara að hafa réttu fletina á því að hafa hana sem árangursríkasta.