sóttvarnalög.
Virðulegur forseti. Ég þakka þetta svar. Hv. þingmaður segist telja aðkomu Alþingis mikilvæga en eins og hér hefur verið farið yfir býsna vel, bæði af hálfu hv. þm. Sigmars Guðmundssonar og hv. þingmanna Bryndísar Haraldsdóttur og Hildar Sverrisdóttir, þá hefur aðkoma Alþingis í raun ekki verið sérstaklega mikil. Hún hefur aðeins falist í einhvers konar kynningu eða skýrslugjöf um sóttvarnatakmarkanir. Mig langar að velta því upp við hv. þingmann hvort honum finnist þetta nóg, hvort honum finnist það í rauninni boðlegt að einu tækin sem t.d. þeir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sem eru óánægðir með tilteknar sóttvarnatakmarkanir hafa séu einhvern veginn þau að góla í fjölmiðlum, góla og góla og fara í viðtöl og ég veit ekki hvað. Í raun hafa þeir engin önnur úrræði nema kannski að leggja fram vantrauststillögu á heilbrigðisráðherra sem þeir telja ekki ganga fram með þeim hætti sem þeir hefðu viljað og kunna að telja að sé að brjóta gegn mannréttindum fólks. Finnst hv. þingmanni þetta boðleg staða, að aðkoma Alþingis sé ekki meiri en raun ber vitni og felist einvörðungu í því að hlusta á heilbrigðisráðherra, sem svo gott sem ræður því svolítið sjálfur hversu miklar upplýsingar eru veittar? Er hv. þingmaður bara ánægður með þetta fyrirkomulag? (Forseti hringir.) Finnst honum þetta boðlegt fyrir æðstu valdastofnun landsins þegar kemur að svona stórum ákvörðunum (Forseti hringir.) um mannréttindi og um líf og heilsu fólks?