sóttvarnalög.
Hæstv. forseti. Ég held að það sé ljóst að við höfum margvísleg þingleg tækifæri til þess að taka umræðu, afla gagna og fá það fram sem við viljum í umræðum hér en það eru líka, eins og komið hefur fram, breyttir tímar sem kalla á breytta nálgun, eins og við erum að ræða hér og erum ekki endilega sammála um hvernig best sé að standa að. Ég hef ekki endilega meiri áhyggjur af þingmönnum Sjálfstæðisflokksins frekar en þingmönnum annarra flokka hér í þinginu. Ég held að þetta sé bara sameiginlegt verkefni okkar allra. Við þurfum að fara yfir leiðirnar til að stíga út úr ástandinu eins og ég talaði um. Það er ekki rétt að við höfum bara setið hér og hlustað á heilbrigðisráðherra, við höfum haft tækifæri til að taka samtalið við hann undir skýrslugjöfinni, velferðarnefnd hefur haft tækifæri eins og hún hefur viljað til að kalla ráðherra fyrir og afla þeirra gagna sem hún hefur óskað eftir. Það eru alls konar tækifæri uppi í þeim efnum. Nú vill fólk ganga lengra og taka enn þá stærri skref og það er stórt verkefni fram undan að stíga út úr faraldrinum. Ég skil það vel að hér sé tekin umræða um hvaða leiðir séu bestar í því og fagna því. Ég er alls ekki að mæla gegn því, mæli nú frekar með því, en við þurfum kannski að gera það með svolítið skipulögðum hætti en ekki út og suður.