152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[19:08]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Herra forseti. Ég ætla ekki að fara í grafgötur með að ég tel að Alþingi eigi að hafa miklu veigameira hlutverk þegar kemur að umræðu og ákvörðunum um sóttvarnatakmarkanir en gert er ráð fyrir í þessu frumvarpi. Ég tel t.d., ef hv. þingmaður er sammála mér og hv. þm. Hildi Sverrisdóttur sem talaði hérna áðan, að það væri miklu skynsamlegri leið til að ná því markmiði að auka aðkomu Alþingis að ákvörðunum um sóttvarnir að þingmenn Sjálfstæðisflokksins styddu t.d. gott frumvarp sem komið er frá þingflokki Viðreisnar, eða legðu fram grundvallarbreytingartillögur við frumvarp um endurskoðun sóttvarnalaga þegar það kemur hingað inn í þingið. Ég fæ kannski að spyrja hv. þingmann hvort hún geti hugsað sér það, hvort hún muni ekki glöð leggja þetta frumvarp til hliðar ef fram koma góðar tillögur, sem eru reyndar þegar komnar fram að mínum dómi, sem tryggja betur aðkomu Alþingis en hér er gert ráð fyrir.