152. löggjafarþing — 33. fundur,  3. feb. 2022.

sóttvarnalög.

247. mál
[19:10]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það gleður mig að heyra það. Ég vonast eftir stuðningi og samstöðu og samstarfi við þingmenn allra flokka um að tryggja betur aðkomu löggjafans að ákvörðunum sem varða takmörkun á stjórnarskrárvörðum réttindum. Ég vonast eftir góðu samstarfi um að gera það með meira afgerandi hætti heldur en er kveðið á um í þessu frumvarpi.