152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

ítök stórútgerðarfyrirtækja.

[15:04]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Spurningin er reyndar til hæstv. sjávarútvegsráðherra sem hefur tekið undir gagnrýni á ýmsar afleiðingar núverandi fiskveiðistjórnarkerfis og ætlar að skipa nefnd um aukið gagnsæi í rekstri stærstu fyrirtækja í sjávarútvegi. Fyrir tveimur árum samþykkti Alþingi einróma beiðni mína um að sjávarútvegsráðherra, þáverandi, léti vinna skýrslu um tangarhald stórútgerðarinnar í íslensku samfélagi í krafti ótímabundinnar nýtingar hennar á fiskveiðiauðlindinni. Vinnan fór vissulega af stað en af einhverjum ástæðum var stigið á bremsuna innan ráðuneytisins og þegar skýrslan loks birtist var ekkert bitastætt í henni að finna. Þar var ekki kortlagt hvernig gróðinn af stórútgerðinni hefur verið nýttur í að fjárfesta í fjölmiðlum, matvælamarkaði, fasteignum, flutningafyrirtækjum og tryggingafélögum, í heilbrigðisgeiranum, á matvælamarkaði, í ferðaþjónustu og veitingastöðum.

Herra forseti. Þetta væri hvergi eftirsóknarverð staða en vegna smæðar sinnar er íslenskt atvinnulíf einfaldlega sérstaklega viðkvæmt fyrir neikvæðum áhrifum fákeppnismarkaðar og það eru sterkar vísbendingar um að áhrif af ofurgróða stórútgerðarinnar í skjóli ótímabundinnar nýtingar séu einmitt í átt til aukinnar fákeppni víða í íslensku atvinnulífi. Þess vegna er gagnsæi sérstaklega mikilvægt. Skýrslan sem Alþingi bað um hefði þannig getað orðið mikilvægt innlegg í þessa vinnu sem núverandi ráðherra ætlar í. Við fengum síðar staðfest í fjölmiðlum að þessum upplýsingum hefði sannarlega verið safnað saman og komið til ráðuneytisins. Hyggst ráðherra nota þær upplýsingar í sína vinnu? Hefur ráðherra stuðning samstarfsflokkanna til að fara í breytingar í átt að réttlátara fiskveiðistjórnarkerfi, stuðning þeirra flokka sem hafa um árabil verið helsta fyrirstaðan í átt að sanngjarnara kerfi?