ítök stórútgerðarfyrirtækja.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina sem varðar að hluta til skýrslubeiðni sem hv. þingmaður lagði fram hér á Alþingi og fékk samþykkta á fyrra kjörtímabili. Hv. þingmaður hefur raunar fylgt þeirri skýrslu og þeirri niðurstöðu eftir með viðbótarfyrirspurn til mín sem ég svaraði með því móti að skýrsla sem ráðherra gefur hverju sinni er á ábyrgð viðkomandi ráðherra en ekki þess ráðherra sem við ráðuneytinu tekur að afloknum kosningum, þannig að ég hef ekki séð ástæðu til að fjalla um þá skýrslu að öðru leyti.
Hins vegar eru þau sjónarmið sem koma fram í máli hv. þingmanns sem lúta að forsendunum til að geta bætt kerfið í átt til réttlátara kerfis að öllu leyti og aukinnar sáttar í samfélaginu, að sá grunnur snúist um gegnsæi og snúist um það að við sjáum betur hvernig málum er háttað að því er varðar eignatengsl eða stöðu ólíkra fyrirtækja í eigu eins aðila o.s.frv.. Ég sammála hv. þingmanni um mikilvægi þess. Það er jafn víst að þegar bæði verkáætlun og tímalínan liggur fyrir að því er varðar þetta stóra verkefni sem fram undan er þá mun sú verkáætlun og sú tímalína vera gerð opinber vegna þess að ég tel að það sé mikilvægt að ekki bara inntak og efni verkefnisins sem slíks liggi fyrir, heldur líka og ekki síður aðferðafræðin við það hvernig verkefnið verður unnið og að þjóðin, samfélagið sjái skýrt hvernig sé háttað.