152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

ítök stórútgerðarfyrirtækja.

[15:09]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V):

Herra forseti. Ég þakka ráðherra erindið. Þetta voru nú ekki svör við spurningunum og ég ætla því að nýta mér mína mínútu hér í að endurtaka þær. En ég vil samt segja eitt: Við verðum að vera ósammála um þá aðferðafræði að ráðherra, og ég tala nú ekki um ráðherra sem kemur úr áframhaldandi stjórnarsamstarfi, sé algerlega óbundinn eða geti fríað ríkisstjórnarflokkana því að svara fyrir verk fyrri ráðherra. Ég tel það einfaldlega vera ávísun á ákveðna misbeitingu þó að ég sé ekki að segja að svo sé í þessu tilfelli. Ég hefði haldið að ráðuneytið gæti upplýst ráðherra um það sem ég spurði um í fyrirspurn minni til ráðherra, þ.e.: Af hverju var vinnan stoppuð? Hversu langt var hún komin?

En ég árétta þá kannski spurningu mína: Hyggst ráðherra nýta þessar upplýsingar? Við höfum fengið staðfest í fjölmiðlum að þær liggja fyrir, þeim var safnað saman, þeim var komið til ráðuneytisins, þeim var komið til ráðherra sem kaus að nota þær ekki og nú liggja þær inni í ráðuneytinu. Og enn fremur árétting: Er ráðherra vongóð um að ná væntum breytingum fram í þessu stjórnarsamstarfi?