152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

ítök stórútgerðarfyrirtækja.

[15:10]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Fyrst varðandi síðustu spurningu hv. þingmanns: Já, ég er vongóð um að það náist fram breytingar. Í öðru lagi spyr hv. þingmaður hvort allar þær upplýsingar sem fyrir liggja í ráðuneytinu verði lagðar til grundvallar og svarið við því er líka já. Það er engin ástæða til annars en að nýta þau gögn sem fram eru komin. En hins vegar árétta ég að það er ekki bara mín skoðun og mín afstaða, heldur er það svo samkvæmt lögum að ráðuneytið þjónar í sjálfu sér þeim tilgangi að vera skrifstofa ráðherra á hverjum tíma og samkvæmt lögum ber ráðherrann sem embættismaður ábyrgð á því svari sem hann gefur Alþingi á hverjum tíma.