rafvæðing bílaleiguflotans.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurningarnar. Eins og hv. þingmaður veit eru loftslagsmarkmiðin, eða aðgerðaáætlunin, á ábyrgð mismunandi ráðherra. Hv. þingmaður veit að þetta einstaka mál þegar kemur að þessum hlutum er ekki á mínu borði. Hins vegar finnst mér gott að hv. þingmaður veki athygli á mikilvægi þess að flýta eins og við getum rafbílavæðingunni. Miðað við bestu upplýsingar sem ég hef eru 4% af bílaflotanum rafbílar. Þó svo að við séum með þeim allra fremstu í heiminum þegar kemur að vistvænum bílum, ég held að við séum númer tvö á eftir Noregi, þá liggur alveg fyrir að það er mikið verk óunnið. Ég held að við sjáum það í hendi okkar þegar við skoðum þetta mál að okkur liggur á að byggja upp innviði til að þetta sé raunhæfur kostur, ekki bara fyrir bílaleigur heldur fólk úti um allt land. Og þegar við skoðum það hverjir eru búnir að eignast rafbíla þá held ég að við getum alhæft um það, eins og ég hef tekið upp á hv. Alþingi, að það sé meira efnameira fólk sem býr á höfuðborgarsvæðinu. En þetta verður að vera fyrir alla. Ég lít því svo á að hv. þingmaður sé að hvetja til þess að flýta þessu eins og hægt er, sem við erum að gera. En þá þarf að líta til fleiri þátta heldur en bara gjalda. Við þurfum líka að líta til innviða af því að þetta verður að vera raunverulegur valkostur.