rafvæðing bílaleiguflotans.
Virðulegi forseti. Ég held að Alþingi verði talsvert erfitt um vik að ræða loftslagsmál ef það á að vera viðkvæðið að ákveðnir þættir loftslagsmála heyri undir aðra ráðherra. Nú er það þannig að stærsti losunarþáttur Íslands heyrir ekki undir loftslagsráðherra heldur matvælaráðherra, en það er losun sem kemur frá landi og viðbrögð við því. Eins er það þannig að almenningssamgöngur og innviðauppbygging almennt heyrir undir innviðaráðherra. Þá veltir maður því náttúrlega fyrir sér til hvers þessi loftslagsráðherra eiginlega er, þegar svona stórir þættir sem hafa með loftslagsmál að gera heyra ekki undir hann. En það er ágætt að loftslagsráðherra er samt til í þetta samtal hér.
Við hljótum öll að vera sammála um að orkuskiptum í samgöngum verður ekki náð fram með milljarða niðurgreiðslu til bensín- og dísilbíla. Ég vil fá að spyrja hæstv. ráðherra hvernig hann ætli svona almennt að beita sér fyrir minni bílaumferð og fyrir auknu frelsi fólks til að velja sér aðra ferðamáta en einkabílinn. Ég spyr einnig hvaða aðgerðir hæstv. ráðherra sjái fyrir sér á þessu kjörtímabili til þess að gera það raunhæfara og eftirsóknarverðara að ferðast um landið án þess að vera á bíl.