rafvæðing bílaleiguflotans.
Virðulegi forseti. Ef hv. þingmaður er að leggja það til að allt það sem heyrir undir loftslagsmálin fari undir loftslagsráðherra þá er ég auðvitað hrærður. En það myndi þýða gríðarleg völd því að þetta tengist öllum þáttum samfélagsins. En bara að það sé lagt til að ég fái öll þessi völd er bara ánægjulegt að heyra og ég met það þannig að það sé sérstakt traust sem hv. þingmaður sé að lýsa yfir gagnvart þeim sem hér stendur. Þetta er stórt verkefni og snertir alla þætti. Þetta er ekki verk eins ráðherra, einnar ríkisstjórnar, heldur þetta þjóðarátak. Þegar kemur að samgöngum er auðvitað gríðarlega mikilvægt, og ég og hv. þingmaður hljótum að fagna því t.d. núna, að við séum að sjá rafflugvélar sem munu verða bylting í almenningssamgöngum. Við sjáum að þau lönd sem við berum okkur saman við eru núna að huga að því að taka upp flugvelli sem eru löngu aflagðir vegna þess að þetta er svo gríðarleg bylting, svo við tökum bara einn þáttinn. En ég vona að við fáum fleiri tækifæri til að ræða þessi mál. Fyrsta rafflugvélin er kominn til landsins og er gert ráð fyrir því að árið 2026 sjáum við fjöldaframleiðslu á 19 sæta vélum.