152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

frumvarp um strandveiðar.

[15:17]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Forseti. Mig langar að spyrja hæstv. matvælaráðherra varðandi frumvarp sem samflokksmaður hennar úr Norðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir, hefur lagt fram, frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, og varðar strandveiðar. Þessu frumvarpi er ætlað að tryggja 48 veiðidaga strandveiðanna, festa það í lög, og auka heimildir ráðherra til að flytja milli flokka innan atvinnu- og byggðakvótakerfisins.

Í 1. gr. kemur fram að aflamark veiðiskips á hverju fiskveiðiári ráðist af leyfðum heildarafla í viðkomandi tegund og hlutdeild skipsins í þeim heildarafla, að frádregnu hlutfalli af magni hverrar tegundar sem skal vera 10,3% í uppsjávarfiski og 5,3% í öðrum tegundum og aflamagni.

Í 2. gr. fær ráðherra heimild til að fullnýta heimildir innan 5,3% kerfisins fyrir árið 2022, sem er í ár, og er ráðherra heimilt að flytja til strandveiða allt að 30% af þorskveiðiheimildum almenna byggðakvótakerfisins auk skel- og rækjuuppbóta fiskveiðiársins 2022/2023.

Þessu frumvarpi er ætlað að tryggja strandveiðar í 48 daga, eins og áður sagði, frá og með árinu 2022. Þetta er aðgerð til að efla sjávarbyggðir um land allt. Frumvarpið hefur vakið miklar væntingar meðal strandveiðimanna og hafa félög strandveiðimanna víða um landið lýst yfir stuðningi við það. Ég minni á, og ég kom hér í pontu áðan, að hæstv. ráðherra tók 1.500 tonn af þorskveiðiheimildum í strandveiðikerfinu. Spurningin er þessi: Ætlar ráðherra að styðja frumvarp hv. þm. Lilju Rafneyjar Magnúsdóttur eða ekki? Þetta er mjög einföld spurning: Já eða nei?