152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

frumvarp um strandveiðar.

[15:19]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að vekja enn máls á málefnum sem lúta að strandveiðum. Það er auðvitað rétt sem kemur fram, og er undirtónninn í fyrirspurn hv. þingmanns, að það er afar mikilvægt að sá hluti fiskveiðistjórnarkerfisins sem sérstaklega er hugsaður til þess að sinna atvinnu- og byggðaverkefnum, þar með talið strandveiðum, nái þeim markmiðum sem lagt var upp með í byrjun. Ég er ekki sannfærð um að svo sé í öllum tilvikum, þ.e. að þeim markmiðum sé náð. Þetta eru auðvitað ýmiss konar leiðir sem þarna eru undir, ekki bara strandveiðarnar heldur líka byggðakvóti og línuívilnun og rækju- og skelbætur. Það er afar mikilvægt að ná utan um það með hvaða móti þessar ráðstafanir hafa í raun verið til þess fallnar að ná þeim markmiðum sem lagt var upp með í byrjun. Ég held að full ástæða sé til að fara vel í saumana á því hvort svo sé. Að mínu mati verður það ekki gert með því að samþykkja frumvarp frá hv. þingmanni, sem nefnt er hér í þessari umræðu, vegna þess að hér þarf heildarmyndin að vera undir. Við verðum að gæta að öllum þeim sjónarmiðum sem hér eru undir. Þau markmið sem hér eru nefnd og lúta að atvinnu- og byggðaverkefnum, og eru kannski dýrmætust þegar þau eru tekin til umræðu, eru þau að við séum með réttu að styðja við byggðirnar í landinu, að við tryggjum í raun að sá afli sem er undir þessum byggðaverkefnum skili sér til byggðanna í landinu. (Forseti hringir.) Til þess að geta svarað þeirri spurningu hvort svo sé þarf ég ítarlegri úttekt en þá sem hv. þingmaður nefnir hér.