frumvarp um strandveiðar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra fyrir svarið. Ég get ekki skilið þetta svar öðruvísi en að það sé: Nei, ég mun ekki styðja það. Ég las það út úr orðum hennar. Þannig að það liggur þá fyrir. En ég vil taka fram að afstaða Flokks fólksins í þessu máli varðandi þetta frumvarp sérstaklega, er að við munum styðja þetta frumvarp heils hugar. Við styðjum heils hugar allar aukningar á fiskveiðiheimildum innan núverandi fiskveiðistjórnarkerfis, sem auka aflaheimildir til strandveiða, svo það sé alveg klárt. En aðalmarkmið okkar og stefna okkar eru frjálsar handfæraveiðar. Það byggir á mannréttindaáliti Sameinuðu þjóðanna þar sem Ísland var dæmt brotlegt fyrir brot á jafnræði vegna fiskveiðistjórnarkerfisins. Ég tel ástæðu til þess núna vegna þessarar skerðingar, sem var 1.500 tonn, að opna það mál aftur, að skoða aftur þetta álit. Það er fyrirrennari þessa frumvarps sem kom með strandveiðunum á sínum tíma. En ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið, það liggur nú algerlega klárt fyrir.