frumvarp um strandveiðar.
Virðulegur forseti. Ég vænti þess að hv. þingmaður sé sammála mér um að spurningin sem við þurfum að spyrja okkur er hvaða verkefni hafa dugað best til að styðja við atvinnustarfsemi í dreifðum byggðum og hvað skilar mestum árangri miðað við þau verðmæti sem ráðstafað er til þeirra verkefna. Það er auðvitað það sem skiptir mestu máli. Skilar tonn í skelbætur sama árangri og tonn í strandveiðar? Sú spurning liggur í loftinu og þeirri spurningu þarf að svara. Þessi umfjöllunarefni verðskulda það að farið sé í saumana á málunum áður en ákvarðanir eru teknar.