152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

nefnd um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.

[15:24]
Horfa

Halldór Auðar Svansson (P):

Virðulegi forseti. Þema dagsins er greinilega stefnumótun í sjávarútvegi. Ég hef, eins og margir aðrir, verið að fylgjast með þáttunum Verbúðinni þar sem tilurð kvótakerfisins er rakin í stórum dráttum. Þó að persónur séu skáldaðar eru atburðir á hinu pólitíska sviði nokkuð nærri lagi. Þar er málið rakið allt frá því að kvótakerfið var fyrst sett á og svo yfir í frjálsa framsalið. Eitt sem þessir þættir varpa ljósi á er að það sem gerist óhjákvæmilega, ef hin pólitíska stefna er ekki nægilega skýr, er að inn koma þeir sem hafa mestan hag og áhuga og fylla í tómið. Hagsmunaaðilarnir ráða bara.

Spólum fjóra áratugi fram í tímann og þá erum við komin inn í nútímann. Ríkisstjórn sem setið hefur í eitt kjörtímabil án þess að gera teljandi breytingar á kerfinu er búin að semja um annað kjörtímabil í viðbót. Í kaflanum um sjávarútvegsmál í stjórnarsáttmálanum segir að stofna skuli nefnd sem m.a. er ætlað að leggja fram tillögur sem eiga að stuðla að aukinni sátt. Ég ætla að lýsa yfir ákveðnum áhyggjum af því að þarna sé verið að útvista pólitískum ákvörðunum í nefnd sem fær mjög óljós og opin fyrirmæli, af því að stjórnarflokkarnir eru allt of ósammála í þessum efnum til að geta leitt málaflokkinn. En hvað um það, þetta er sú leið sem á að fara. Því vil ég spyrja hæstv. matvælaráðherra nokkuð opinna spurninga: Hvernig miðar undirbúningi að stofnun nefndarinnar og hvenær má búast við að hún hefji störf? Hversu langan tíma fær hún? Hverjir megum við búast við að sitji í henni? Og í raun spyr ég bara um hvað annað sem ráðherra vill deila með okkur um þessa nefnd á þessum tímapunkti.