152. löggjafarþing — 34. fundur,  7. feb. 2022.

nefnd um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.

[15:26]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og óska honum um leið til hamingju með jómfrúrræðu sína í þessum fyrirspurnatíma. Ef ég fæ að svara spurningunni eins og hún er lögð upp, sem er tiltölulega opið eins og hv. þingmaður nefnir hér, þá segir í stjórnarsáttmálanum: Skipuð verður nefnd. Og svo kemur einhver frásögn af því til að kortleggja tækifæri o.s.frv., bera saman stöðuna hér og erlendis og fjalla um hvernig hægt sé að auka gagnsæi í rekstri o.s.frv. Ég hef gegnt embætti sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og nú matvælaráðherra í nokkrar vikur og hef auðvitað verið með þetta verkefni á mínu blaði sem nánast verkefni nr. 1 frá því að ég tók við embætti. Ég er þeirrar skoðunar í fyrsta lagi að ég hef ekki allan tímann í heiminum til að hugsa um hvernig ég ætla að gera þetta og það er algjörlega á hreinu að það verða bornar upp spurningar í fyrirspurnatíma um það hvernig það á að gera. Hins vegar er ég líka þeirrar skoðunar að þetta er ekki eitt verkefni, þetta er fleira en eitt verkefni. Hér hafa til að mynda verið nefnd þessi atvinnu- og byggðatengdu mál. Hér hafa verið nefnd málefni sem lúta að eignatengslum og framsali o.s.frv., sem er annað mál. En allt tengist þetta órofa böndum þar sem við þurfum að hafa einhverja yfirsýn yfir það hvernig þessari lykilatvinnugrein okkar er fyrir komið. Ég tel að það sé ekki ráð að fara í einhverja tröllaukna nefndaskipan sem fær allan tímann í heiminum til að setja fram stórbrotna lausn á þessu verkefni. Ég held að það sé miklu frekar þannig að þetta séu fleiri verkefni, þau séu af mismunandi stærðargráðu og ég vonast til þess, og ég er eiginlega að reyna að setja sjálfri mér það fyrir, (Forseti hringir.) að í lok þessa mánaðar sé ég með verkáætlun sem verður tímasett í þessu efni.