nefnd um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða.
Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Þetta var nokkuð innan þess ramma sem búast mátti við. Það er enn þá verið að móta hugmyndina og viða að sér nákvæmlega því hvað á að fara þarna inn og á hvaða forsendum. Hins vegar þá leyfi ég mér að hafa áfram ákveðnar efasemdir um þetta og fannst það í rauninni liggja svolítið í máli ráðherra um að þessi nefnd sé ekki að fara að leysa hin pólitísku viðfangsefni sem fyrir liggja. Sennilega mun hún vinna í einhvern tíma og koma með einhvers konar kortlagningu og sviðsmyndagreiningu sem er kannski nýtt til upplýsingagjafar og bakgrunnsvinnu en svo taka í raun við stærri spurningar sem eru pólitískari í eðli sínu og er tekist á um. Hugtakið sátt, hvað þýðir það? Sátt hverra? Það verður ekki hjá því komist að einhvers konar afstaða sé tekin. (Forseti hringir.) Ég ætla líka að hvetja til að þessi vinna verði unnin eins þverpólitískt og hægt er.